Donkey Kong

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Til ykkar ljóshærða fólk....

Svo að það sé á hreinu fyrir ykkur gríðarlega ljóshærða fólk, þá var þetta aprílgabb (NO SHIT!) sem ég skrifaði einmitt á 1.apríl. Trúi því varla að fólk hafi spurt mig að þessu í alvörunni....damnit...hehe. En þó svo að London Towers myndi bjóða mér að spila fyrir þá, ef að London Towers eru þá til yfirhöfuð, myndi ég alveg öruglega neita því þar sem körfubolti á Bretlandi er jú frekar slakur :p og nei, ekki af því mér finnst ég vera svalur eða þannig crap (þessi lína er sérstaklega beind til Arnars G) heldur af því að ég gæti alveg eins bara verið hér hjá fólkinu sem ég þekki og spilað fyrir klúbbinn sem ég dýrka. ÞÓR!
En annars er lítið að frétta, við unnum Hauka í 8-liða úrslitunum og spilum við KR á föstudaginn í Valsheimilinu....og vonandi úrslitaleik á sunnudeginum og vonandi komum við heim með dollu, VONANDI.
Kveð annars bara að sinni!

föstudagur, apríl 01, 2005

Já Takk'ana!!!

Hei there folks. Just practicing my English u know, i holla at you,you holla at me! Yeah.
En já það er ástæða fyrir því að ég er að æfa mig í enskunni, það var hringt í mig í fyrradag og var það þjálfarinn minn. Hann sagði mér að það hefði scout frá London Towers hringt í sig og spurst fyrir um samning minn hjá Þór...svar Hrafns þjálfara var einfalt: "He doesn't have a conctract, we don't play Pro ball here in Iceland". Scoutanaum fannst það nokkuð gott mál og þeir vilja tala við mig, eru að bjóða mér til Bretlands að skoða aðstæður og liðið. Vilja að ég spili með u-21 liðinu sínu fyrst og byrji á að skrifa undir 1 árs samning.

Ég á samt eftir að fara í gegnum nokkur smáatriði en það er frekar líklegt að ég sé á leiðinni til Bretlands núna bráðlega :) Snelld'ana!! :D

Verð í lengri kaðli seinna,
Baddi (a.k.a. Bjarn'ana)

miðvikudagur, mars 30, 2005

Páskafrí á enda...

Pfff....er það eina sem kemur útúr mínum munni núna. Páskafríið er á enda og skóli á morgun, eða eftir 8 tíma! Vont mál, það. En maður getur hrósað sig sælan þar sem engin stærðfræði verður fyrr en í næstu viku, kennarinn í útlöndum or sum.
Ég er ennþá að pæla hvort ég eigi ekki bara að hætta þessu bloggi, og helga mig algerlega FEIMINN síðunni, mæli með því að þið fólk lesið þá síðu. Samansafn af gaurum sem vita frekar lítið en það sem þeir skrifa og lenda í er snelld.
Allavena er þetta páskafrí búið að vera frekar slakt, ég er búinn að djamma tvisvar = lélegt. Annars er það bara búið að vera liggja uppi í rúmi allan daginn og horfa á fyrstu 17 þættina í OC seríu 2. Sumum finnst það hlægilegt, en ekki mér og Kristjáni. Neibb, við elskum þetta kvikindi, horfðum á 2 þætti í nótt. Og eftir að við hættum að horfa saman, og Kristján fór inní herbergi þá kemur hann, "Hei Bjarni, þanna má ég ekki bara fá tölvuna og horfa á einn þátt í viðbót.
Daginn eftir þegar við vöknum þá spyr ég hann hvenær hann hafi farið að sofa, æi ég held eikkað 4 or sum, horfði að 2 þætti :D Hehe, idiot.

En þetta er fínt, bless'ana.!

sunnudagur, mars 27, 2005

Skjóta og skora...

Tja, ég ætla ekki að skrifa um gothara í dag. Enda þess alveg óþarfi, búinn með kvótann í því að tala um það fólk. En já það var sona grunnskóla-reunion í gærkvöldi heima hjá Sigrúnu. Fínt djamm þar á ferðinni sem dró leið sína í Sjallann á Papana og síðan í eftirparti heim til Brynju. Flott þar mar, mætti einhver gaur með okkur sem enginn þekkti og hann ákvað bara að fara sofa á sófanum inn í stofu, allir bara WHAT! Hver ertu?! En kvöldið var virkilega gott, gaman þar sem lýður eins og Þóra og Ingó joinuðu drykkjuskap, fínt er. Góð þróun, og nú er bara Kristján eftir...efast reyndar um að það sé mögulegt að spilla honum en það má reyna :p
Fékk að heyra fullt af góðum hlutum um mig í Sjallanum þar sem ég lenti í 2 körfuboltamönnum á trúnó, gaman að því segi ég nú bara.
En þetta er orðinn fínn pistill, held ég taki því bara rólega í kvöld, við strákarnir vorum að spá í að kíkja bara á Ali og taka nokkra Pool or sum.

C'ya eða Bless'ana!

fimmtudagur, mars 24, 2005

Ég tapaði í nótt!

Verð að játa mig sigraðan! Ég djammaði ekkert í nótt, fór ekki í Sjallann eins og töluverður fjöldi af hópnum í gær. Sálin að spila, það hitar mig ekker gríðarlega hehe. Í staðinn keyrði ég í nokkra hringi með Þóru og Jönu frænku hennar, henni tókst að fræða okkur töluvert um Goth-fólk. En tek samt fram að hún er það ekki, alls ekki. Ég held að ég sé alls ekki langt frá því að vera fordómafullur gagnvart gothurum. Vont fólk að ég held, vill meina það. Þetta er bara subbulegt og það er vond þróun að allt þetta unga fólk í grunnskóla sé að haga sér og líta sona út. Hreinn óbjóður.
En ég má víst ekki missa mig í að skíta yfir þetta fólk, en ég bara fatta þetta ekki. Akkuru vill fólk líta sona út og lifa eftir þessum reglum gothara (ef þær eru þ.e.a.s einhverjar aðrar en að vera sóðalegur og líta ógeðslega út). Þúst, svart í kringum augun, hvít andlit, kolsvart subbulegt feitt hár, sóðaleg föt og göngulag og pakkinn.
Æi það er ágætt að koma þessu út úr mér hénna, það er ekki eins og einhver lesi þessa síðu held ég. Hehe.

Endilega commentið um álit ykkar á gothurum hénna fyrir neðan!

mánudagur, mars 21, 2005

Mr. boring

Ákvað að henda sona eins og einum pistli hénna inn, reyndar held ég að það sé enginn sem skoði þessa síðu. Lítur ekki út fyrir það í commentunum...eða þá einfaldlega að fólkið sem skoðar síðuna sé ekki nógu vel gefið til að geta commentað. Spurning.
En málið er að það er bara ekkert að gerast hjá mér, bara same old, æfa,æfa,æfa,lyfta,sofa,æfa meira. Sérstaklega núna í páskafríinu þar sem það er náttlega enginn skóli. En ef einhver er so heimskur að lesa ennþá þetta blogg, þá má hann alveg commenta á þennan tilgangslausa og leiðinlega pistil. Já takk.

fimmtudagur, mars 10, 2005

You should let me love you aaaaaaahhhhhaaaaa dadadiadada

Já eins og titillinn segir ykkur þá er ég undir áhrifum lagsins "Let me love you" með Mario. Ég er hrifinn af þessu lagi, já, fínt mál. En síðan blog.central.is/feiminn er kominn í fullt gang og mæli ég með þessari lesningu, þar sem við heimastrákarnir bloggum allir saman. Það er amk nóg að lesa!!
En ég gerði veðmál við Kollu *Singstar* í gær, þar sem hún og einhver vinkona hennar eru að fara taka þátt í söngvakeppni MA þá gerðum við þann díl að ef þær enda í topp 3 eða vinna þúst frumlegasta atriðið eða eitthvað þannig crap...þá hleyp ég hringinn í kringum vistina á kisunærbuxunum mínum. Já, ég held að þetta hafi bara verið ágætis move, þar sem það eru 24 atriði og ég hef enga trú á að þessar ungu pjátur séu að fara gera einhverjar rósir.
Og já inni á "feiminn" blogginu þá eru niðurstöður í síðustu skoðanakönnun um það hver væri harðastur! Jú ég vann takk fyrir, greinilegt að ég er harðari en ég hélt ég væri. Eða er bara verið að vorkenna mér, nú veit ég ekki.
Bleble.